Upplifum kenía 31. maí - 17. júní 

Einstakt tækifæri til að upplifa kenía með heimafólki á frábæru verði!

Ferðalýsing 

Í þessari ferð kynnumst við landi og þjóð á einstakan hátt. Við heimsækjum skóla Íslensku barnahjálparinnar og heimsækjum einnig nemendur skólans og foreldra þeirra. Við skoðum okkur um í höfuðborginni Nairobi sem gjarnan er kölluð “græna borgin í sólinni”. Við förum á kaffihús og skemmtilega veitingastaði, skoðum söfn og kynnumst ýmsum hliðum borgarinnar. Við gistum í Harvest gistihúsinu sem Íslenska barnahjálpin rekur í fallegu lokuðu hverfi þar sem við höfum stórt einbýlishús fyrir okkur með ellefu svefnherbergjum og eru flest herbergin eru með sér baðherbergi.

Frá Nairobi höldum við í friðsælu og fögru sveitina í Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Þar rekur Íslenska barnahjálpin framhaldsskóla fyrir 150 nemendur. Loitoktok er í landi Masaai fólksins. Við kynnumst menningu þeirra og siðum og heimsækjum fjölskyldur nemenda. Við gistum í nýbyggðu gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar þar sem er glæsilegt útsýni og mjög góð aðstaða fyrir okkur. Öll herbergin eru með sér baðherbergi. Á kvöldin kveikjum við varðeld. Í lok ferðarinnar verður farið í tvo flottustu safarígarðana í Kenía, Amboseli og Tsavo West og endað á ströndinni við Indlandshaf.

Heildarverð er 500.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi.
Aukakostnaður fyrir einn í herbergi er 45.000 kr.
Innifalið: Flug til Kenía. Öll gisting, allur akstur, lestir og innanlandsflug. Tvær máltíðir á dag í Nairobi, þrjár máltíðir á dag í Loitoktok og safaríferð, tvær máltíðir á ströndinni. Aðgangseyrir í þjóðgarða.
Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Máltíðir á veitingahúsum, kaffihúsum og lest. Aðgangur á söfn. Drykkir á hótelum, þjórfé og bátsferð.
Fararstjóri:
Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 18 ár.


Ferðaplan:

Dagur 1. Laugardagur 31. maí  Flogið frá Íslandi í gegnum nálæga Evrópuborg, t.d. Kaupmannahöfn, Oslo eða London.

Dagur 2. Sunnudagur 1. júní:  Lending í Nairobi.
Gist verður á gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar.

Nairobi

Dagur 3. Mánudagur 2. júní     

Við tökum okkur tíma til að kynnast heimafólki. Um morguninn fáum við fræðslu frá skemmtilegum fyrirlesara um Keníska menningu. Eftir hádegi verður heimsókn í Harvestskólann í Kariobangi sem Íslenska barnahjálpin rekur. Þar munum við upplifa einstakar kenískar móttökur.
Við borðum kvöldmat heima í húsi.

Dagur 4. Þriðjudagur 3. júní     

Þennan dag munum við heimsækja Harvestskólann og kynna okkur skólastarfið betur. Kennarar og starfsfólk taka á móti okkur og við munum líta inn í kennslustundir. Einnig taka nokkrir nemendur skólans á móti okkur á heimilum sínum. Stuðningsaðilar munu fá að heimsækja börnin sín.
Við borðum á skemmtilegum veitingastað um kvöldið.

Dagur 5. Miðvikudagur 4. júní

Við keyrum til suður - Nairobi á Karen Langatta svæðið.
Við heimsækjum þar gíraffagarðinn og Karen Blixen safnið og borðum á góðum veitingastað í hádeginu.
Kl. 19.00 er kvöldmatur heima í húsi.

Dagur 6. Fimmtudagur 5. júní 

Við tökum daginn snemma og förum á þjóðminjasafnið og í snákagarð. Kíkjum í Indverska hverfið. Um kvöldið förum við á Safari park hótelið í stóra grillveislu og danssýningu.

Dagur 7. Föstudagur 6. júní

Þennan dag heimsækjum við teakrana í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Við heimsækjum býlið þar sem te var fyrst ræktað í Kenía, fræðumst um te og smökkum. Við borðum svo hádegismat á býlinu. Eftir túrinn förum við í Village market verslunarmiðstöðina.

Dagur 8. Laugardagur 7. júní

Þennan morgun keyrum við til Loitoktok.  Við gistum í Ol-doinyo house sem er nýtt gistihús Íslensku barnahjálparinnar. Hádegismatur á gistihúsinu. Eftir hádegi förum við í heimsókn í skólann sem er þar rétt hjá.
Kvöldmatur heima í húsi og varðeldur.

Dagur 9. Sunnudagur 8. júní

Við byrjum daginn á því að sækja sunnudagsmessu nemenda skólans. Það er ótrúlega skemmtileg upplifun. Við kynnumst nemendum betur og eyðum smá tíma með þeim. Förum í leiki og lærum dansa. Seinnipartinn keyrum við að landamærum Tanzaníu og skyggnumst yfir. Um kvöldið við varðeldinn fáum við fræðslu frá Masaai konum um menningu þeirra.

Dagur 10. Mánudagur 9. júní

Þennan dag förum við út í byggðirnar og heimsækjum Masaai fólkið í þeirra heimahaga. Varðeldur um kvöldið.

Safarí: Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 11. Þriðjudagur 10. júní

Amboseli þjóðgarðurinn liggur við rætur Kilimanjaro. Hann er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins. Snemma um morguninn förum við í safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um kl. 12.30 förum við á hótel í garðinum og borðum þar hádegismat. Þeir sem vilja geta farið í laugina. Við slökum á á hótelinu til um kl. 15.30. Þá förum við aftur á stjá að skoða dýralífið. Reynum að koma auga á ljón. Við förum út úr garðinum um kl. 18.30 og gistum heima í húsi.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 12. Miðvikudagur 11. júní

Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn snemma að morgni. Tsavo west er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um kl 12.00. Við fáum okkur hádegismat, förum í laugina og njótum þessa dásamlega staðar. Kl. 16.30 keyrum við til Mzima springs og förum þar í stuttan göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Dagur 13. Fimmtudagur 12. júní

Við tökum annan dag í Tsavo West. Við leggjum af stað frá hótelinu og höldum af stað inn í Rhino dalinn. Þar er mikil náttúrufegurð. Eftir skoðunarferð um dalinn þar sem við reynum að koma auga á sjaldgæfar antilópur þá förum við á annað hótel sem er staðsett á einstökum stað í fjallshlíð og borðum þar hádegismat. Seinnipartinn um kl. 15 förum við í bíltúr á verndarsvæði nashyrninga. Það er 80 ferkílómetra afgirt svæði þar sem um 80-100 nashyrningar búa og við reynum að koma auga á þá. Kl. 18 förum við út úr garðinum og gistum á flottu safari hóteli.

Keníska ströndin - Indlandshafið

Dagur 14. Föstudagur 13. júní

Kl. 9.30 Lagt af stað frá Tsavo West í lestina til Mombasa og lendum kl. 14. Ekið á hótelið í um klukkutíma. Við gistum á flottu fjögurra stjörnu hóteli við ströndina með öllum gæðum.

Dagur 15. Laugardagur 14. júní

Slökunardagur á hótelinu. Hægt er að nota tímann til dæmis fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl eða fara á bak á kameldýri á ströndinni.
Kvöldmatur á hótelinu eða við förum út að borða á spennandi stað.

Dagur 16. Sunnudagur 15. júní  

Frjáls dagur og tími til að gera allt það sem ekki náðist að gera daginn áður. Fara í skoðunarferð eða slaka á við ströndina. Kvöldmatur á hótelinu.

Dagur 17. Mánudagur 16. júní

Eftir morgunmatinn kl. 10:00 tékkum við út af hótelinu og förum í skoðunarferð til borgarinnar Mombasa. Þar skoðum við gamla bæinn og fræðumst um merkilega sögu.
Seinnipartinn tökum við klukkutíma flug til Nairobi.
Flug aftur til Íslands um kvöldið í gegnum evrópska borg.
Dagur 18. Þriðjudagur 17. júni Lending í Keflavík.