keníaFerðir

Menning - safari - strönd - skóli - ráðstefnur - Golf - kilimanjaro - sjóstangaveiði

Kenía er stórkostlegt land að heimsækja. Ferðirnar okkar eru mikil upplifun og ævintýri sem er samofin af náttúrufegurð, dýralífi og menningu Kenía og eru á einstaklega góðu verði. Með áralanga reynslu og innsýn inn í kenískt samfélag bjóðum við upp á fjölbreyttar sérsniðnar ferðir og viljum kynna þetta fallega land fyrir sem flestum Íslendingum. Landið hefur upp á svo margt að bjóða. Ægifagurt landslag, vingjarnlegt fólk og einstakt andrúmsloft. Við erum með ferðir við allra hæfi og getum einnig sett saman sérsniðnar ferðir eftir pöntun fyrir hópa eða einstaklinga. Þar má nefna upplifunar og menningarferðir, gönguferðir, safaríferðir, strandferðir og svo golfferðir.

Auk þess bjóðum við árlega upp á faglega ferð fyrir t.d. kennara, félagsráðgjafa, heilbrigðisstarfsfólk ofl. Þar höfum við skipulagt dagskrá með skólaheimsóknum, fyrirlestrum, vettvangsferðum og möguleika á starfsþátttöku. Þessar ferðir uppfylla skilyrði til ferðastyrks t.d. hjá KÍ og fleiri sjóðum stéttarfélaga. Í þessum ferðum upplifir þátttakandinn líka þau ævintýri sem aðrar ferðir okkar hafa upp á að bjóða. Ferðasýn er í samstarfi við Íslensku barnahjálpina og hluti ferðanna tengist því starfi.

golf-Október 2026

Ævintýri í kenía janúar 2027

áramótaferð 2026 

Golf-páskar 2027

Áramótagolf 2026

Kenía júní 2026