Sérstakt kynningarverð á Golf og Safaríferð til kenía 22.maí til 7.júní

Einungis 610.000 kr. með flugi, gistingu, golfi, safari, innanlandsferðum og mikið af máltíðum

Í Kenía er frábært að spila golf. Vellirnir eru einstaklega fallegir og veðrið að spila í er dásamlegt. Fólkið er frábært og þjóðgarðarnir stórkostlegir.
Að ekki sé minnst á ægifagrar strendur.

Gisting í Nairobi er á Windsor Golf hotel. Hótelið er 5 stjörnu hótel, hannað í gömlum breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Á Windsor er að finna glæsilegan 18 holu golfvöll. Öll herbergin eru með frábæru útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er einnig líkamsræktraðstaða, upphituð sundlaug, nudd og snyrtistofa, flottur veitingastaður og bistro við sundlaugina. Gisting í Loitoktok og Safarígörðunum er á 4 stjörnu safarihótelum. Í Vipingo á ströndinni er gist í golf villum í kringum golfvöllinn.

Verð: 610.000 kr. á mann miðað við tvo í herbergi.
Innifalið: Flug til Kenía. Öll gisting með morgunverði. Tvær kvöldmáltíðir á veitingastöðum í Nairobi. Fullt fæði í ferð til Loitoktok og safarí. Þrír kvöldverðir á Vipingo. Aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Aðgangseyrir á Karen Blixen safnið. Allur ferðakostnaður innanlands sem innifelur einnig safarí, lest og innanlandsflug með golf farangri.  Níu golfhringir með caddy.
Verð án golfs: 540.000 kr.
Verð miðað við einn í herbergi: 720.000 kr.
Ekki innifalið: Vegabréfsáritun. Hádegisverðir í Nairobi og Vipingo. Hádegisverðir í Vipingo. Drykkir með máltíðum. Aðgangseyrir á söfn. Viðbótargolf.
Fararstjóri Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 18 ár.

Ferðaáætlun:

Dagur 1 - Fimmtudagur 22. maí - Brottför frá Íslandi
Flogið frá í Keflavík til Evrópuborgar eins og t.d. Kaupmannahafnar, þaðan til Qatar og áfram til Nairobi. Það er mögulegt að fljúga í einni lotu og lenda snemma morguns í Nairobi eða brjóta ferðina upp og gista eina nótt á hóteli á leiðinni.

Dagur 2 - Föstudagur 23. maí - Flug til Nairobi
Lending annaðhvort snemma að morgni eða að kvöldi.
Innritun inn á Windsor Golf Hótel.

Dagur 3 - Laugardagur 24. maí - Golf á Windsor

Fyrsti golfhringurinn. Hægt er að taka daginn snemma og spila að morgni eða sofa út og spila seinnipartinn. Eftir golfleik er kjörið að njóta lífsins á veitingastaðnum sem er með útsýni yfir völlinn. Einnig er hægt að fara í nudd og slaka á við laugina. Við borðum á hótelinu um kvöldið.

Dagur 4 - Sunnudagur 25. maí - Golf á Windsor

Meira Golf! Hringur tvö á Windsor. Um kvöldið förum við og borðum fjögurra rétta máltíð á skemmtilegum veitingastað.

Dagur 5 - Mánudagur  26. maí - Loitoktok
Við leggjum af stað snemma morguns í ævintýraferð og keyrum til Loitoktok sem liggur í fallegri sveit við rætur Kilimanjaro. Þar býr Masaai ættbálkurinn. Við komuna þangað borðum við heimalagaðan hádegisverð í Oldoinyo house, nýbyggðu gistihúsi fararstjóranna, Þórunnar og Samúels. Eftir matinn heimsækjum við Harvest skólann. Nemendur og starfsfólk skólans taka á móti okkur á sinn einstaka hátt. Að því loknu heimsækjum við Masaai heimili og fræðumst um einstaka menningu þeirra. Um kvöldið gistum við á fjögurra stjörnu safarikampi.

Dagur 6 - Þriðjudagur 27. maí  - Amboseli þjóðgarðurinn

Snemma að morgni keyrum við inn í Amboseli þjóðgarðinn sem er við rætur Kilimanjaro. Hann er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins. Við byrjum á safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um kl. 12 förum við á hótelið þar sem boðið er uppá hlaðborð í hádeginu. Seinnipartinn förum við aftur á stjá og reynum að koma auga á ljón.

Dagur 7 - Miðvikudagur 28. maí - Tsavo West þjóðgarðurinn

Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn snemma morguns. Tsavo West er afskekktur, víðfeðmur og stórkostlega fallegur náttúrugarður. Við komum á hótelið um kl. 12.00 og borðum hádegismat. Um kl. 16.15 keyrum við til Mzima springs og förum þar í smá göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Keníska ströndin - Vipingo Ridge

Dagur 8 - Fimmtudagur 29. maí - Keníska ströndin

Kl. 9.30 Lagt af stað frá Tsavo West og keyrt á lestarstöðina. Kl. 11.00 leggur lestin af stað til Mombasa og lendir kl. 14. Þaðan ökum við til Vipingo Ridge sem tekur um klukkutíma. Við slökum á og njótum dagsins á ströndinni eða við laugina.   

Dagur 9 - Föstudagur 30. maí - Golf á Vipingo.  

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur við Indlandshafsströndina og er einn af þremur bestu völlunum í Kenía. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og ekki óalgengt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa. Það er töluvert heitara í Vipingo en í Nairobi og því tökum við golfdaginn snemma. Förum svo á Vipingo strandbarinn seinnipartinn og slökum á. Borðum kvöldmat þar.

Dagur 10 - Laugardagur 31. maí  - Golf á Vipingo

Við tökum annann hring á Vipingo. Við borðum hádegisverð í klúbbhúsinu. Seinnipartinn förum við á stjá og skoðum hvað fleira Vipingo og ströndin hafa upp á að bjóða.

Dagur 11 - Sunnudagur 1. júní  - Golf á Vipingo

Það er tími fyrir annan hring á Vipingo um morguninn. Eftir hádegi keyrum við til borgarinnar Mombasa og skoðum þar gamla bæinn sem á sér mjög merkilega sögu. Fljúgum svo þaðan klukkutíma flug til Nairobi.

Dagur 12 - Mánudagur 2. júní - Kenísk menning

Við ætlum að taka okkur tíma til að kynnast heimafólki. Við fræðumst um Keníska menningu um morguninn. Eftir hádegi verður heimsókn í Harvestskólann í Kariobangi sem Íslenska barnahjálpin rekur. Við munum þar hitta fyrir fleiri Íslendinga sem eru að koma sérstaklega til að heimsækja skólann. Þar munum við upplifa einstakar kenískar móttökur. Fyrir þá sem vilja er hægt að skella í 9 holur seinnipartinn.

Dagur 13 - Þriðjudagur 3. júní - Golf á Muthaiga Golf Club

Nú prófum við Muthaiga golfvöllinn, glæsilegur völlur í fögru skóglendi.
Hér er Kenya Open haldið árlega. Eftir hádegi förum við í kaffitúr á Hótel Windsor. Á landareigninni eru einnig 500 ekrur af kaffirækt. Allt kaffi á Windsor er því ræktað, þurrkað og ristað á staðnum. Við förum í skoðunarferð á kaffiakrana, fræðumst um kaffi, sjáum kaffi ristað og smökkum það.

Dagur 14 - Miðvikudagur 4. júní - Golf á Karen Golf Club

Við keyrum til suðurhluta Nairobi og prófum Karen golfvöllinn, sem er á landi Karenar Blixen. Þetta er mjög fallegur völlur sem ár eftir ár hefur verið kosinn besti völlurinn í Nairobi. Eftir golfið heimsækjum við Karen Blixen safnið sem er á fyrrum heimili hennar og í húsinu þar sem óskarsverðlaunamyndin Out of Africa var tekin upp.

Dagur 15 - Fimmtudagur 5. júní  - Golf á Windsor 

Við tökum þriðja hringinn á Windsor. Frjáls dagur eftir hádegi.
Um kvöldið förum við saman út að borða á flottum veitingastað.

Dagur 16 - Föstudagur 6. júní  - Frjáls dagur

Fjórði hringurinn á Windsor. Heimferð að kvöldi.

Dagur 17 - Laugardagur 7. júní  - Lending á Íslandi

Golfið og vellirnir

Loftslagið í Nairobi er einstaklega milt og þægilegt, sem skapar kjöraðstæður fyrir golf. Borgin er í um 1600-1700 metra hæð og því verður ekki of heitt. Hitastigið í lok maí er frá um 15 gráðum á nóttunni og upp í 23-25 gráður eftir hádegi. Þunna loftið gerir það einnig að verkum að golfkúlan svífur að jafnaði um 10 metrum lengra.

Windsor völlurinn

er sérlega fallegur golfvöllur. Hann er par 72 og liggur í gegnum skóglendi og gamlar kaffiekrur þar sem er mikið fugla og dýralíf. Apar eru fastagestir á vellinum. Skógurinn gerir það að verkum að næsta hola kemur aðeins í ljós við komu á næsta teig, fyrir utan holu 1 og 18 sem eru á opnum grænum bölum. Það eru vel yfir sjötíu glompur á vellinum.

Muthaiga golf klúbburinn

er í um 8 mínútna akstur frá Windsor. Þessi völlur er metinn besti völlurinn í Nairobi og þar er Kenya open golfkeppnin haldin árlega. Fyrstu 9 holurnar voru gerðar árið 1913 og árið 1926 var völlurinn stækkaður á 18 holur. Hann var svo endurhannaður á árunum 2004 til 2005 af suður-afríska arkitektinum Peter Matkovich. Muthaiga völlurinn liggur í gegnum Karura skóglendið en er opnari en Windsor völlurinn. Töluvert er af tjörnum og vötnum.

Karen Golf club

Völlurinn er í suðurhluta Nairobi og er staðsettur á fyrrum kaffiekrum Karenar Blixen, hins heimsfræga danska rithöfunds. Hún plantaði þar trjám sem enn er að finna á vellinum í dag. Karen Country Club var stofnaður árið 1937, sama ár og bókin Out of Africa kom út. Völlurinn er fjölbreyttur og skemmtilegur og einnig þekktur fyrir litskrúðug blómstrandi tré og runna. Hann liggur um votlendi þar sem er að finna mikið fuglalíf og litlar dikdik antilópur. Sjá má Ngong hæðir í bakgrunni.

Keníska ströndin - Vipingo ridge golf club

Vipingo Ridge völlurinn er staðsettur við strönd Indlandshafs og er metinn einn besti golfvöllurin í Kenía. Mikið dýralíf er í kringum völlinn og ekki óalgegt að sjá sebrahesta, antilópur og gíraffa.