menningin, skólinn og samfélagið - ráðstefna í kenía 16. júní til 2. júlí 2025

Tilgangur ráðstefnunnar

er að stíga út úr okkar eigin samfélagi um stundarsakir og fræðast um hvernig aðrir gera hlutina. Þegar við stígum út úr okkar eigin aðstæður og horfum á okkur sjálf utan frá, þá sjáum við hlutina í nýju ljósi. Í öðrum speglum við okkur sjálf og öðlumst nýtt sjónarhorn. Okkar daglega sjónarhorn á lífið og samfélagið er íslenskt. Í stærra samhengi er okkar sjónarhorn evrópskt. Okkar menning og viðhorf eru ekki svo ólík okkar næstu nágrönnum. Til að læra eitthvað alveg nýtt viljum við stíga út fyrir þægindaramma vesturlanda og inn í annan gjörólíkan menningarheim Afríku. Við skoðum lífið og okkur sjálf með afrískum augum. Ráðstefnan er starfstengd og upphaflega sniðinn að kennurum sem geta sótt um einstaklingsstyrk til kennarasambandsins til þátttöku. En hún er einnig opin öllum sem áhuga hafa að stækka sjóndeildarhringinn og vaxa á sínum starfsvettvangi. Hún hentar til dæmis heilbrigðisstarfsmönnum sem geta einnig heimsótt heilbrigðisstofnanir í ferðinni.

Ferðalýsing 

Kenía er stórkostlegt land að heimsækja. Í þessari ferð kynnumst við landi og þjóð á einstakan hátt. Við heimsækjum skóla Íslensku barnahjálparinnar og heimsækjum einnig nemendur og foreldra skólans. Við skoðum okkur um í höfuðborginni Nairobi sem gjarnan er kölluð græna borgin í sólinni. Við förum á kaffihús og skemmtilega veitingastaði, skoðum söfn og kynnumst ýmsum hliðum á borginni. Við gistum í Harvest gistihúsinu í fallegu lokuðu hverfi þar sem við höfum stórt einbýlishús fyrir okkur. Flest herbegin eru með sér baðherbergi.  

Þaðan höldum við í friðsælu og fögru sveitina í Loitoktok sem liggur við rætur Kilimanjaro. Þar rekur Íslenska barnahjálpin framhaldsskóla fyrir 150 nemendur. Loitoktok er í landi Masaai fólksins. Við kynnumst menningu þeirra og siðum og heimsækjum fjölskyldur nemenda. Við gistum í nýbyggðu gistihúsi Íslensku barnahjálparinnar þar sem er glæsilegt útsýni og mjög góð aðstaða fyrir okkur. Öll herbergin eru með sér baðherbergi. Á kvöldin kveikjum við varðeld.

Ráðstefnugjald: 230.000 kr. Innifalið: Öll gisting með morgunverði plús ein önnur máltíð á dag í Nairobi. Allur matur innifalinn í Loitoktok. Allur bíla og ferðakostnaður. Ekki Innifalið: Flug til Kenía og flugvallarhótel. Áætlað verð er um 160.000 kr

Viðbótarferð: 170,000 kr. Safarí - innifalið: Gisting á hótelum í Amboseli og Tsavo west ásamt öllum máltíðum. Aðgangseyrir inn í þjóðgarðana Amboseli og Tsavo west. Safari bílar. Ekki innifalið: drykkir á hótelunum. Keníska ströndin – innifalið: Lest frá Tsavo West til Mombasa og keyrsla á hótel. Hótel gisting í þrjár nætur með að minnsta kosti tveimur máltíðum inniföldum. Innanlandsflug til baka til Nairobi og keyrsla til og frá flugvöllum. Ekki innifalið: matur í lest og á veitingastöðum, drykkir á hótelunum, þjórfé, bátsferð. Fararstjórar eru Gunnhildur Gunnarsdóttir leiðsögumaður til margra ára og Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 18 ár.

Heildarverð fyrir utan flug miðað við tvo í herbergi: 400.000 kr. (60.000 kr auka fyrir einn í herbergi)

Ferðaplanið:

Dagur 1 Mánudagur 16. Júní  Við fljúgum frá Íslandi í gengum nálæga evrópuborg eins og t.d. Kaupmannahöfn, Oslo eða London

Dagur 2. Þriðjudagur 17. júní:  Lending í Nairobi. Gist verður á gistiheimili Íslensku barnahjálparinnar. Þar eru 11 gestaherbergi, flest með sínu eigin baðherbergi.

Nairobi

Dagur 3 – miðvikudagur 18. júní :   -  Ráðstefnan hefst

9:00-10:00 : Morgunmatur. 10:00-12:30 : Hvernig er að reka skóla í Kenía. Þórunn Helgadóttir segir frá stofnun skólanna og þeim áskorunum sem fylgja því að reka skóla í Kenía. 12:30-13:30 : Hádegismatur. KLukkan 13:45 förum við svo í heimsókn í Harvest skólana í Kariobangi. Kenísk menning beint í æð. Við hittum fyrir Kennara og nemendur sem taka á móti gestum á sinn keníska máta.

Dagur 4 – Fimmtudagur 19.júní:  -  Kenísk menning

9:30-12:30: Fyrirlestur frá Penninah Nguli. Swahili tungumála - og menningarkennari . Penninah hefur margra ára reynslu af að kenna vesturlandabúum um keníska menningu. Farið verið yfir grunnatriði menningarinnar og hvernig ólík þjóðarbrot með ólík tungumál ná að mynda samfélagslega heild. Hverjar eru grunn samskiptareglurnar og hvernig eru þær ólíkar okkar? Við lærum einnig nokkrar setningar á Swahili. 13:00-14:00 : Hádegismatur. Frá 4:00-16:00 heimsækjum við heimili nemenda Harvest skólans sem búa í fátækrahverfum Nairobi. Við kynnumst aðstæðum þeirra heima fyrir. Við setjum það sem við lærðum um morguninn í samhengi.

Dagur 5 - Föstudagur 20. júní: Keníska skólakerfið og Harvestskólarnir

8:30-9.30 :Morgunmatur. Frá 9.30-12:30 fáum við fyrirlesara frá keníska menntamálaráðuneytinu. Kenía hefur gengið í gegnum miklar breytingar á skólakerfinu síðust ár. Nú er verið að breyta um kerfi. Nýjar áherslur eru komnar inn og ný námsskrá ýtir út þeirri gömlu, eitt ár í senn. Þessu hafa fylgt ýmsar áskoranir fyrir skólasamfélagið. Fyrirlesarinn kynnir þetta fyrir okkur og þær áskoranir sem menntamálaráðuneytið stendur frammi fyrir. Frá 12:30-13:30 hádegismatur. Klukkan 14:00-16:00 fara Kennarar Harvestskólanna yfir skólastarfið og þær áskoranir sem því fylgja. Farið verður yfir samskipti og samstarf við menntamálaráðuneytið, foreldra og deilda innan skólans.

Dagur 6 – Laugardagur 21. júní: - Fagvinnustofur og umræður

8:30-9.30: Morgunmatur. Frá 10:00-12:30 verja kennarar tíma með kennurum í sínu fagi. Fara inn í kennslustundir og kynna sér námsefnið og kennsluna.  Íslensku kennararnir deila einnig til nemenda og kennara sinni þekkingu. 13:00 – 14:00: Hádegismatur . Frjáls tími seinnipartinn   

Dagur 7– Sunnudagur 22. júní: - Hvíldardagur í Nairobi.

Tími til að melta það sem við höfum upplifað og til að upplifa aðrar hliðar á borginni. 10.00-18.00: Karen Langatta svæðið.  Við heimsækjum gíraffagarðinn og Karen Blixen safnið. Borðum á góðum veitingastað í hádeginu. Kvöldmatur heima í húsi.

Loitoktok

Dagur 8 - Mánudagur 23. júní: 

Leggjum snemma af stað til Loitoktok og borðum hádegismat þar. Frá klukkan 14:00 förum við í heimsókn í heimavistarskólann í Loitoktok. Í skólanum eru 150 nemendur á aldrinum 14-19 ára. Í Loitoktok býr Masaai fólkið. Það hefur sína eigin menningu og viðhorf sem eru ólík menningunni í Nairobi. Nemendur koma þar í skóla þar sem kennt er á öðrum gjörólíkum tungumálum en þeirra eigin. Ýmis menningarleg áhrif setja líka strik í reikninginn þegar kemur að menntun en aðrir menningarþættir smyrja samskipti og létta lífið.

Dagur 9 - Þriðjudagur 24. júní: - Masaai fólkið

9:00-10:00 : Morgunmatur Frá klukkan 10:00-13:00 förum við í heimsóknir út í sveitirnar til nemenda og foreldra þeirra. Við kynnumst aðstæðum og menningu Masaai fólksins. Hádegismatur og fáum svo Susan Moyaso, unga Masaai konu í heimsókn sem segir sögu sína af baráttu sinni við að komast í skóla. Hún segir frá menningu Masaai fólksins. Um kvöldið er í boði að taka þátt í kvöldsamkomu nemenda Harvest skólans í Loitoktok.

Dagur 10 - Miðvikudagur 25. júní: - Skólinn

9:00-10:00: Morgunmatur og þar á eftir verjum við tíma með nemendum og kennurum skólans. Hver kennari heimsækir sitt fag, fylgist með kennslu og deilir með nemendum og kennurum sinni þekkingu og menningu. 13:00 -14:00 . Hádegismatur . Seinnipartinn umræður : Ísland og Kenía. Þórunn og Gunnhildur leiða umræður. Hvað höfum við lært á þessum dögum? Hvaða samanburð getum við gert á milli þessara þjóðfélaga og hvað höfum við lært af Keníabúum sem við gætum gert betur í okkar eigin skólum og menningu?

Ráðstefnulok

Safarí: Amboseli Þjóðgarðurinn

Dagur 11 - Fimmtudagur 26. júní

08.30 : Amboseli þjóðgarðurinnÞjóðgarðurinn liggur við rætur Kilimanjaro. Hann er stundum kallaður fílahöfuðborg heimsins. Um morguninn förum við í safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um kl 12 förum við á hótelið og tékkum okkur inn. Hlaðborð í hádeginu. Um kl. 16 þá förum við aftur á stjá að skoða dýralífið. Reynum að koma auga á ljón.

Tsavo West þjóðgarðurinn

Dagur 12 – Föstudagur 27. júní

8.00 Lagt af stað í Tsavo West þjóðgarðinn. Tsavo west er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við komum á hótelið um kl 12.00. Við fáum okkur hádegismat, förum í laugina og njótum þessa fallega staðar. Um kl 16.30 keyrum við til Mzima springs og förum þar í smá göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla

Keníska ströndin

Dagur 13 – Laugardagur 28. júní

09.30 : Lagt af stað frá Tsavo west í lestina. Hún leggur af stað kl 11.00 til Mombasa – Komum á hótelið um kl 15:30. Tími til að slaka á við laugina.

Dagur 14 – Sunnudagur 29. júní

Frjáls dagur. Hægt að nota tímann til dæmis fyrir spa á hótelinu, fara í skoðunarferð, kíkja í búðir, fara í bátsferð og snorkl, eða fara á kameldýr á ströndinni. 19:30 : Kvöldmatur á hótelinu eða við förum út að borða á spennandi stað.

Dagur 15 – Mánudagur 30. júní

Frjáls dagur. Tími til að gera allt það sem ekki var hægt að gera daginn áður. Kvöldmatur á hótelinu.

Dagur 16 – Þriðjudagur 1. júlí Hádegisflug til Nairobi. Flug aftur til Íslands um kvöldið.