keníaFerðir
Golf - safari - menning - strönd - skóli - ráðstefnur - kilimanjaro
Kenía er stórkostlegt land að heimsækja og ógleymanleg upplifun. Landið hefur upp á svo margt að bjóða; ægifagurt landslag, vingjarnlegt fólk og einstakt andrúmsloft. Við hjá Ferðasýn sérhæfum okkur í ferðum til Kenía og viljum kynna þetta fallega land fyrir sem flestum Íslendingum. Við bjóðum upp á fjölbreyttar ferðir við allra hæfi og getum einnig sett ferðir saman eftir pöntun. Þar má nefna almennar menningarferðir, safaríferðir, strandferðir og svo golfferðir.
Auk þess bjóðum við árlega upp á styrkbæra ráðstefnu fyrir t.d. kennara og heilbrigðisstarfsfólk.
Einnig getum við skipulagt Kilimanjaro gönguferðir eftir pöntun.
Í ferðum okkar upplifir gesturinn landið og menninguna á fjölbreyttan hátt. Ferðirnar byrja ávallt í höfuðborginni Nairobi, sem er stærsta borg Austur-Afríku. Þar er að finna fjölbreytt samfélag, skemmtilega veitingastaði, fallega golfvelli og frábært fólk. Borgin er í 1600-1700 metra hæð sem skapar milt og þægilegt loftslag. Við heimsækjum einnig Loitoktok við rætur Kilimanjaro og kynnumst þar menningu Masaai fólksins. Við upplifum síðan magnaða villta náttúru kenískra þjóðgarða. Að lokum er farið á kenísku ströndina við Indlandshaf sem er einstök með hvítan sand og heitan sjó. Við störfum í samstarfi við Íslensku barnahjálpina og hluti ferða okkar tengist því starfi.