Kenía

Kenía er stórkostlegt land að heimsækja. Í þessari ferð upplifum við dásamlega fallega golfvelli ásamt skemmtilegum veitingastöðum og merkilegri menningu heimamanna. Við heimsækjum Loitoktok við rætur Kilimanjaro. Kynnumst þar menningu Masaai fólksins og upplifum svo magnaða villta náttúru Amboseli og Tsavo West þjóðgarðanna. Loftslagið í Nairobi einstaklega milt og þægilegt, sem skapar kjöraðstæður fyrir golf. Borgin er í um 16-1700 metra hæð sem skapar þetta milda loftslag. Meðalhiti dagsin í lok maí er frá um 15 gráðum á nóttunni og upp í 24 til 25 gráður eftir hádegi. Fararstjóri verða Þórunn Helgadóttir sem hefur búið og starfað í Kenía í 18 ár og eiginmaður hennar frá Kenía.

Verð: 600.000 fyrir utan flug miðað við tvo í herbergi. Áætlað flugverð: um 150.000 kr. Innifalið: Öll gisting með morgunverði. Fullt fæði í ferð til Loitoktok og safarí. Aðgangseyrir í tvo þjóðgarða. Allur ferðakostnaður innanlands sem innifelur einnig safarí og lest.  Níu golfhringir ásamt golfbíl eða caddy. Viðbótarkostnaður: Flug sem við bókum hjá Feria. Flugvallarhótel. Hádegis- og kvöldverðir í Nairobi. Drykkir í safarí hótelunum. Aðgangseyrir á söfn. Viðbótargolf.

Windsor Golf hótel

Að spila og dvelja á Windsor er ógleymanleg upplifun. Hótelið er hannað í gömlum breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Það er staðsett í norður borginni í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá miðborginni. Windsor býður upp á glæsilegan 18 holu golfvöll, líkamsræktaraðstöðu, tennis- og skvassvelli, spa og upphitaða sundlaug. Öll herbergi, svítur og hús eru með glæsilegt útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er flottur veitingastaður og bistro við sundlaugina. Golfvöllurinn er staðsettur í glæsilegu landslagi. Fyrir utan opnunar- og lokunarholu á hverri níu, eru brautirnar allar umkringdar skógi, og næsta hola kemur aðeins í ljós við komu á næsta teig. Mikið fuglalíf er í skóglendinu og algengt er að sjá apa í trjánum.

Ferðaáætlun:

Dagur 1 – Laugardagur 24. Maí:

Flogið frá Íslandi til London eða Kaupmannahafnar - Gist á hóteli nálægt flugvellinum.

Dagur 2 – Sunnudagur 25. Maí: Flug til Nairobi
Morgun flug áfram til Nairobi og lending að kvöldi. Tékkað inn á Windsor - fjögra stjörnu golf hótel.
Dagur 3 – Mánudagur 26. Maí:
Fyrsti golfdagurinn á Windsor. Frábær dagur til að njóta. Völlurinn er 18 holu völlur staðsettur í einstaklega fallegu skóglendi. Hann er par-72 og býður upp á breiðar brautir, vötn og sandgryfjur. Eftir golfleik er kjörið að njóta lífsins á veitingastaðnum sem er með útsýni yfir völlinn. Einnig er hægt að fara í nudd og slaka á við laugina. Við borðum á hótelinu um kvöldið

Dagur 4 – Þriðjudagur 27. Maí: Golf á Windsor um morguninn. Um klukkan 15.30 eftir golf og slökun förum við í smá bíltúr um hverfið og endum í Village market verslunarmiðstöðinni. Þar er gaman að kíkja í skemmtilegar búðir, fá sér ís og njóta lífsins. Við borðum svo kvöldmat á skemmtilegum ítölskum veitingastað um kvöldið.

Dagur 5 – Miðvikudagur  28. Maí: Golf á Windsor – Te akrarnir
Golf á Windsor. Þennan dag er sniðugt að skipta 18 holunum í tvennt. Við tökum 9 holur um morguninn og 9 seinnipartinn. Um kl 11 förum við í heimsókn á teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Við heimsækjum Kiembethu Tea farm sem er lítíð te býli í um 2000 metra hæð. Þar byrjaði teræktunin í Kenía.
Við heyrum söguna, smökkum te og fáum heimagerðan hádegismat. Klukkan 15 förum við aftur á Windsor og höfum tíma fyrir aðrar 9 holur seinnipartinn.

Dagur 6 – Fimmtudagur 29. Maí: Golf á Muthaiga golf club. Nú ætlum við að prófa nýjan völl. Þessi völlur er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu. Muthaiga er mjög fallega hannaður völlur sem býður upp á krefjandi  golf. Einn besti völlurinn í Nairobi og hér er Kenya open golf tournament haldið árlega. Völlurinn var endurgerður á árunum 2004-05 af arkitektinum Peter Matkovich.  Um kvöldið förum við út að borða á glæsilegan veitingastað.

Loitoktok

Dagur 7 – Föstudagur 30. Maí: Loitoktok 
Nú leggjum við af stað í ævintýraferð og keyrum til Loitoktok sem liggur í fallegri sveit við rætur Kilimanjaro. Þar býr Masaai ættbálkurinn. Við komuna þangað borðum við heimalagaðann hádegisverð í nýbyggðu gistihúsi fararstjóranna, Þórunnar og Samuels. Eftir matinn heimsækjum við Harvestskólann. Nemendur og starfsfólk skólans taka á móti okkur á sinn einstaka hátt. Að því loknu heimsækjum við Masaai heimili og fræðumst um einstaka menningu þessa þjóðflokks. Við gistum á gistihúsinu um kvöldið, kveikjum varðeld í garðinum og njótum samverunnar.

Safarí: Amboseli - Tsavo West

Dagur 8 – Laugardagur 31.maí: Amboseli þjóðgarðurinn Við vöknum snemma og höldum af staði í Amboseli þjóðgarðinn sem er um 30 mínútna akstur frá gististað. Hann er stundum kallaður fílahöfuð borg heimsins. Við byrjum á safaríferð um garðinn og skoðum dýralífið. Um kl 12 tékkum við kkkur inn á fjögurra stjörnu hótel. Þar verður hlaðborð í hádeginu. Seinnipartinn  förum við aftur á stjá og reynum að koma auga á ljón.

Dagur 9 – Sunnudagur 1. Júní - Tsavo west þjóðgarðurinn. Við leggjum snemma af stað í Tsavo West þjóðgarðinn. Tsavo er víðfeðmur náttúrugarður. Hann er afskekktur og skartar einstaklega fallegu landslagi. Við tékkum okkur inn á einstaklega fallegt hótel í garðinum um kl 12.30. Við fáum okkur hádegismat, förum í laugina og njótum þessa fallega staðar. Um kl 16.30 keyrum við til Mzima springs og förum þar í smá göngutúr. Þar má gjarnan koma auga á flóðhesta og krókódíla.

Dagur 10 - Mánudagur 2. Júní - lestin til Nairobi 09:45 Lagt af stað frá Tsavo west. Við keyrum til Mtito Andei og tökum lestina kl 11.00 til Nairobi. Við komum þangað kl 14. 10 og verðum komin aftur á Windsor um það bil 15:15. Tími fyrir 9 holur fyrir þá sem vilja.

Dagur 11 – Þriðjudagur 3. Júní  - Muthaiga golf club – Harvest skólinn Við ætlum aftur á Muthaiga golf völlinn. Við tökum 18 holur og borðum hádegismat í klúbbnum. Kl 14 þá forum við í heimsókn í Harvest skólann í Kariobangi sem Íslenska barnahjálpin rekur. Við munum þar hitta fyrir fleiri íslendinga sem eru að koma sérstaklega til að heimsækja skólann. Þar munum við upplifa einstakar kenískar móttökur.

Dagur 12 – Miðvikudagur 4. Júní  Golf – Karen golf club. Völlurinn er í suðurhluta Nairobi og er staðsettur á fyrrum kaffiekrum Karenar Blixen, hins heimsfræga danska rithöfunds. Karen Country Club var stofnaður árið 1937, sama ár og bókin Out of Africa kom út. Völlurinn er sérlega fallegur, umlukin blómstrandi trjám og runnum.   Eftir golfið heimsækjum við Karen Blixen safnið sem er staðsett á fyrrum heimili hennar og í húsinu þar sem óskarsverðlauna myndin Out of Africa var tekin upp. Ef tími gefst þá skellum við okkur í gíraffagarðinn í lokinn.

Dagur 13 – Fimmtudagur 5. Júní - Muthaiga golf club Við stefnum á Muthaiga völlinn og tökum góðan golf hring. Seinnipart dags þá slökum við á en þá er einnig val um það að fara í heimsókn á heimili nemenda í Harvestskólanum og kynnast nánar þeirra aðstæðum. Þetta er líka tækifæri til að kynnast heimafólki betur.

Dagur 14 – Föstudagur 6. Júní – Golfvöllur að eigin vali. Golf og meira golf! Val um að spila á heimavöllunum eða prófa fjórða völlinn. Seinniparturinn er frjáls. Það má t.d. slaka á, kíkja ofan í miðbæ eða fara á handverksmarkað.

Dagur 15 – Laugardagur 7. Júní Þetta er síðasti dagurinn og hann er frjáls. Þar sem við fljúgum heim til Íslands að kvöldi þá geta þeir sem vilja notað þennan síðasta dag fyrir viðbótar golf. Við munum biðja um late check out á hótelinu. Við nýtum síðan gistiheimili fararstjóra um kvöldið til að undirbúa okkur fyrir næturflugið heim.

Dagur 16 – Sunnudagur 8. Júní Lendum á Íslandi um það bil á hádegi.

〰️

Mig dreymir um sól í Afríku

〰️ Mig dreymir um sól í Afríku

 

Ferðaáætlun:

Dagur 1 – Laugardagur 24. Maí:

Flogið frá Íslandi til London eða Kaupmannahafnar - Gist á hóteli nálægt flugvellinum.

Dagur 2 – Sunnudagur 25. Maí: Flug til Nairobi
Morgun flug áfram til Nairobi og lending að kvöldi. Tékkað inn á Windsor - fjögra stjörnu golf hótel.

 

Windsor Golf hótel

Að spila og dvelja á Windsor er ógleymanleg upplifun. Hótelið er hannað í gömlum breskum herragarðsstíl með afrískum áhrifum. Það er staðsett í norður borginni í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg norður Nairobi. Windsor býður upp á glæsilegan 18 holu golfvöll, líkamsræktaraðstöðu þar á meðal tennis- og skvassvelli, spa og upphitaða sundlaug. Öll herbergi, svítur og hús eru með glæsilegt útsýni yfir golfvöllinn. Á hótelinu er flottur veitingastaður og bistro við sundlaugina sem bjóða upp á mikið úrval af alþjóðlegum réttum og drykkjum.

Golfvöllurinn er staðsettur í glæsilegu landslagi. Fyrir utan opnunar- og lokunarholu á hverri níu, eru brautirnar allar umkringdar skógi, og næsta hola kemur aðeins í ljós við komu á næsta teig. Mikið fuglalíf er í skóglendinu og algengt er að sjá apa í trjánum.

Dagur 3 – Mánudagur 26. Maí:
Fyrsti golfdagurinn á Windsor. Frábær dagur til að njóta. Völlurinn er 18 holu völlur staðsettur í einstaklega fallegu skóglendi. Hann er par-72 og býður upp á breiðar brautir, vötn og sandgryfjur. Eftir golfleik er kjörið að njóta lífsins á veitingastaðnum sem er með útsýni yfir völlinn. Einnig er hægt að fara í nudd og slaka á við laugina. Við borðum á hótelinu um kvöldið

 

Dagur 4 – Þriðjudagur 27. Maí: Golf á Windsor um morguninn. Um klukkan 15.30 eftir golf og slökun förum við í smá bíltúr um hverfið og endum í Village market verslunarmiðstöðinni. Þar er gaman að kíkja í skemmtilegar búðir, fá sér ís og njóta. Við borðum svo kvöldmat á skemmtilegum ítölskum veitingastað um kvöldið.

Dagur 5 – Miðvikudagur  28. Maí: Golf á Windsor – Te akrarnir
Golf á Windsor. Þennan dag er sniðugt að skipta 18 holunum í tvennt. Við tökum 9 holur um morguninn og 9 seinnipartinn. Um kl 11 förum við í heimsókn á teræktarsvæðið í hæðunum fyrir ofan Nairobi. Við heimsækjum Kiembethu Tea farm sem er lítíð te býli í um 2000 metra hæð. Þar byrjaði teræktunin í Kenía.

This is the perfect place for generating visitor interest by going into more detail about yourself, your project, or your mission. You can talk about how your idea started, how long you’ve been working on it, what it stands for, and why it’s important. The more specific you are, the more visitors can engage with what you do. This is also an opportunity to answer any questions they may have about you or your work.

Foster’s long, scrolling homepage is actually an Index Page, which stacks multiple pages vertically. Under a Foster Index Page, any regular Page with a background image supports parallax scrolling, a 3D effect that creates depth and immersion. Learn more about Foster’s Index Page here.

The Foster template supports three separate navigation areas: two in the site header section and one in the footer section. All navigation areas can be styled independently. For example, to give prominence to certain pages in your site, you can include them in the header navigation. Other pages with secondary importance can go in the footer. You can create drop-down menus by placing pages in a folder in the Pages Panel. Learn more about Foster’s navigation features here.

With any Squarespace template, you can use Spacer Blocks to tailor the layout of your pages. For more information on blocks, click here. The following is placeholder text known as “lorem ipsum,” which is scrambled Latin used by designers to mimic real copy. Lorem ipsum dolor sit amet…